Formaður bæjarráðs leggur til að sameiginleg yfirlýsing Sveitarfélagsins Árborgar og Ungmennafélags Selfoss vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja á Selfossvelli verði samþykkt.
Tillagan var samþykkt með tveimur atkvæðum gegn þremur, Gunnar Egilsson D-lista greiddi atkvæði á móti.
Gunnar Egilsson, D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
Ljóst er að fjölnota íþróttahús mun rísa á Selfossi og hafa bæjarfulltrúar D-lista ekkert á móti slíkri framkvæmd, en telja að sveitarfélagið hafi ekki fjárhagslega burði til að ráðast í slíkt verkefni á þessum tímum.
Gunnar Egilsson, D-lista