Svf. Árborg hefur boðist til kaups færanleg skólastofa, til viðbótar við þær tvær sem nú þegar eru í pöntun. Áætlað kaupverð er um 25 m.kr. Kaupin væru til að bregðast við biðlistum í leikskólum sem vaxið hafa hratt í vor.
Bæjarráð samþykkir kaupin og felur bæjarstjóra að ganga frá viðauka.
Samþykkt 2-0. Gunnar Egilsson greiddi atkvæði á móti.
Fulltrúi D-listans mótmælir þvi að gögn komi ekki með auglýstu fundarboði.
Gunnar Egilsson.