Heimild til veðsetningar vegna gatnagerðargjalda
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 43
15. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Vegna óska sýslumanns um verklag við þinglýsingar er óskað eftir að bæjarráð gefi bæjarstjóra umboð til að veita veðheimildir í lóðarréttindum vegna veðlána til lóðarumsækjenda til greiðslu gatnagerðargjalda.
Svar

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umrætt umboð til að veita veðheimildir í lóðarréttindum vegna veðlána til lóðarumsækjenda til greiðslu gatnagerðargjalda.