Tillaga frá 58. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 16. desember sl., liður 5. Deiliskipulagsbreyting Víkurheiði. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst og bárust umsagnir frá umsagnaraðilum. Farið yfir innkomnar umsagnir. Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin yrði samþykkt.
Svar
Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista, Gunnar Egilsson, D-lista, Kjartan Björnsson, D-lista, Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Ari B. Thorarensen, D-lista taka til máls.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.