Fulltrúi frá Motus kemur á fund bæjarráðs og kynnir tilboð um þjónustu við Árborg.
Svar
Fulltrúar Motus mættu á fundinn og kynntu tilboð um þjónustu við Sveitarfélagið Árborg. Bæjarráð samþykkti að fela fjármálastjóra að láta fara fram verðkönnun á innheimtuþjónustu Sveitarfélagsins.