Framkvæmd afsláttar á gatnagerðargjöldum við Hulduhól á Eyrarbakka og Ólafsvelli á Stokkseyri
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 61
30. janúar, 2020
Annað
Svar

Í september 2014 samþykkti bæjarráð að veita sérstakan 75% afslátt af álögðum gatnagerðargjöldum af byggingarhæfum íbúðarhúsalóðum við Hulduhóla á Eyrarbakka og Ólafsvelli á Stokkseyri og að afslátturinn skyldi gilda til ársloka 2016. Afslátturinn hefur gilt áfram fram á þennan dag.
Við Hulduhól eru sex lausar lóðir, fimm einbýlishúsalóðir og ein parhúsalóð. Við Ólafsvelli eru níu einbýlishúsalóðir lausar.
Með vísan til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og til að hvetja til uppbyggingar við þessar götur leggur bæjarráð til að 75% afsláttur verði áfram veittur af þessum lóðum.