Erindi frá Hestamannafélaginu Sleipni, dags. 8. júní, þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi vegna Íslandsmóts barna og unglinga í hestaíþróttum sem fram fer á Selfossi 18. - 21. júní nk.
Svar
Bæjarráð samþykkir að styðja við verkefnið um kr. 600.000,- Jafnframt óskar bæjarráð eftir yfirliti yfir rekstraruppgjör vegna mótsins þegar það liggur fyrir. Menningar- og frístundadeild falið að útfæra samstarfið.