Minnisblað frá deildarstjóra frístunda- og menningardeildar, dags. 22. júní, um innanbæjarstrætó og breytingu á leiðarkerfi 2020.
Svar
Bæjarráð samþykkir að bæta við ferð milli byggðarkjarna í Árborg fyrir hádegi (ferð 2 í töflu) og færa til tímasetningar á leiðum eftir hádegi til að samræma við frístundaaksturinn. Breytingarnar rúmast innan fjárhagsáætlunar.