Erindinu var frestað á 63. fundi skipulags- og byggingarnefndar og óskað eftir greinargerð umsækjanda um heildar byggingaráform á lóðinni. Greinargerð umsækjanda hefur nú borist.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að ráðist verði í endurskoðun deiliskipulagsskilmála Tjarnarbyggðar í samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Samþykkt samhljóða.