Tillaga frá 53. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 7. október sl., liður 12. Framkvæmdir án leyfis - Efra Sel.
Skipulagsfulltrúi stöðvaði framkvæmdir sem voru hafnar án leyfis að Efra Seli skv. 16 gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi. Óskað var staðfestingar bæjarstjórnar á stöðvun framkvæmda að Efra Seli.
Svar
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista og Gunnar Egilsson, D-lista tóku til máls.
Staðfesting bæjarstjórnar er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.