Lagt er til við bæjarráð að fyrirkomulag vinnutímastyttingar, eins og það var samþykkt í bæjarráði þann 7. janúar sl., verði látið halda sér til 1. júní næstkomandi. Fyrir 1. júní liggi fyrir tillögur vinnustaða um vinnutímatilhögun, ásamt mati stjórnenda á þeim.
Svar
Bæjarráð samþykkir að reynslutími fyrirkomulags vinnustaða við vinnutímastyttingu verði framlengt. Bæjarráð óskar eftir að tillögur um breytt fyrirkomulag liggi fyrir þann 1. október, þannig að svigrúm skapist til reynslu yfir sumartímann.