Viðauki við fjárhagsáætlun 2021
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 33
17. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Viðauki nr. 3
Málaflokkur 02: 02‐021- Skrifstofa félagslegrar þjónustu: Greiðsla til Bergrisans bs. vegna rými á Breiðabólsstað fyrir 2019 og 2020 samtals 46.215.000 kr.
Málaflokkur 27: Kostnaður v/ sumarstarfa fyrir námsmenn í samvinnu við Vinnumálastofnun samtals 15.000.000 kr.
Tillaga frá 107. fundi bæjarráðs, frá 4. mars sl., liður 3. Umsókn um stofnframlag til viðbótar vegna fjölgunar íbúða að Heiðarstekk.
Umsókn Bjargs íbúðafélags hses. um stofnframlag til viðbótar vegna fjölgunar leiguíbúða um tvær íbúðir.
Í hönnunarferlinu fyrir húsin við Heiðarstekk kom í ljós að það var hægt að fjölga íbúðum um tvær, úr 26 í 28. Bjarg hefur sent inn umsókn til HMS vegna þessara viðbótaríbúða. Það bættust við 2 stk af 5 herbergja íbúðum en stofnframlag Árborgar vegna þeirra yrði um 10,6 millj.
Meðfylgjandi er umsóknin en samhliða er sótt um stofnframlag vegna þessara tveggja íbúða til Árborgar.
Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkt yrði umsókn Bjargs um aukið stofnframlag vegna tveggja viðbótaríbúða. Jafnframt felur bæjarráð fjármálastjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun vegna útgjaldanna, að upphæð 10,6 m.kr, til að leggja fyrir bæjarstjórn. Einnig fer bæjarráð fram á að lagt verði fyrir bæjarstjórn minnisblað um heimildir sveitarfélagsins til að setja skilyrði um endurgreiðslu stofnframlags að lokinni uppgreiðslu lána vegna húsnæðisins.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 8 atkvæðum. Ari B. Thorarensen, D-lista sat hjá.