Skipulags- og byggingarnefnd hefur kynnt sér umsagnir Hverfisráðs Eyrarbakka og Landforms, sem unnið hefur tillöguna "Eyrarbakki, Verndarsvæði í byggð".
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við umsækjanda að skilað verði inn uppdráttum þar sem að mænishæð bílskúrs hefur verið lækkuð til samræmis við aðliggjandi hús. Þegar endanlegur uppdráttur liggur fyrir verði byggingarleyfisumsókn grenndarkynnt fyrir hlutaðeigandi aðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.