Meginmarkmið deiliskipulagsins er að skilgreina íbúðarlóð fyrir nýjan íbúðarkjarna á Selfossi, þar sem gert er ráð fyrir 6‐9 íbúðum á vegum Bergrisans / Ás styrktarfélags. Staðsetning íbúðarkjarnans við Nauthaga hefur verið valin með þær forsendur í huga, sem eru m.a. aðgengi, nálægð við þjónustu og útivistarsvæði, gott aðgengi o.fl.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að deiliskipulagslýsing verði kynnt fyrir almenningi og óskað umsagna umsagnaraðila í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða.