Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir innkomna athugasemd við grenndarkynningu. Athugasemdin snýr að breyttri legu göngustígar um opið svæði og lagst er gegn því að því verði raksað. Einnig tekur athugasemd yfir aukna umferð fólks um svæðið sem muni valda ónæði fyrir aðliggjandi húseigendur.
Skipulagsnefnd fellst ekki á rökfærslur í athugasemd. Í þéttbýli eru lagðar gönguleiðir víðsvegar um íbúðarhverfi og ólíklegt er að umferð um gönguleiðir valdi ónæði fyrir íbúa. Með breyttri legu göngustígs og aðkomu frá Kjarrmóa og Starmóa er verið að auka möguleika íbúa til heilbrigðrar útivistar og góðra gönguleiðatenginga. Til að koma til móts við hluta af athugasemd, samþykkir skipulags- og byggingarnefnd að lega göngustígs verði færð lítillega til austurs, nær miðju svæðisins.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að óveruleg breyting á deiliskipulagi verði samþykkt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.