Eiður I Sigurðarson f.h. Verk og tæki ehf. sækir um tímabundin afnot af lóðinni Breiðamýri 6, Selfossi til lageringar og skolunar á klæðningarefni skv. meðfylgjandi erindi.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd heimilar umsækjanda afnot af lóðinni til 1. september 2021. Erindinu vísað til Mannvirkja- og umhverfissviðs til útfærslu og samningagerðar. Samþykkt samhljóða. Ari Már Ólafsson kemur aftur til fundar.