Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að lóðin Eyravegur 67, Selfossi verði stækkuð í samræmi við óskir lóðarhafa.
Varðandi aðkomu að lóðinni frá Eyravegi 67 hefur svar borist frá Vegagerðinni um að til að standast hönnunarkröfur hafi aðkomu verið hnikað lítillega til norðurs. Skipulagsfulltrúa falið að vinna að lausn í samráði við húseigendur og Vegagerð.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta vinna nýtt lóðablað og nýjan lóðaleigusamning um lóðina.
Samþykkt samhljóða.