Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þykkvaflöt 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 68
23. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Valdimar Erlingsson sækir um leyfi til að byggja einbýlishús og bílskúr. Á lóðinni er þegar byggður sökkull og ráðgert er að byggja húsið skv. áður samþykktum uppdráttum. Stærðir 216,7 m2 og 689,3 m3
Svar

Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um staðfestingu hönnunarstjóra og að aðaluppdrættir verði uppfærðir til samræmis við gildandi byggingarreglugerð.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

820 Eyrarbakki
Landnúmer: 196135 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001029