Vilhjálmur Kristjánsson f.h. Selfossveitna, sækir um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborun í Hellislandi. Um er að ræða borun á einni rannsóknarholu skv. meðfylgjandi erindi.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að framkvæmdaleyfi verði veitt. Skipulags- og byggingarnefnd leggur áherslu á að samráð verði haft við Skógræktarfélag Selfoss varðandi framkvæmdir og frágang verksins. Samþykkt samhljóða.