Haukur Friðriksson f.h. G.G. Tré óskar eftir áliti skipulags- og byggingarnefndar á varðandi hugmyndir um byggingu geymsluhúsnæðis að Hellismýri 4 og Breiðumýri 3. Heildar byggingarmagn á lóðunum yrði um 1924 m2, og hvert geymslurými 25-50 m2.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í framkomnar hugmyndir og beinir því til fyrirspyrjanda að sækja um umræddar lóðir. Samþykkt samhljóða.