Hannes Þór f.h. Fagralands ehf. kt. 450321-0790, óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu frárennslislagna og dælustöðvar í Austurbyggð, skv. meðfylgjandi hönnunargögnum unnum af HNIT verkfræðistofu dags. 20. október 2021.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að framkvæmdaleyfi verði veitt með fyrirvara um athugasemdir við hönnunargögn af hálfu mannvirkja- og umhverfissviðs.