Framkvæmdaleyfisumsókn - Suðurhólar göngustígur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 130
11. nóvember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 80. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 3. nóvember, liður 16. Framkvæmdaleyfisumsókn - Suðurhólar göngustígur
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar óskaði eftir framkvæmdaleyfi vegna gerðar göngustígs meðfram Austurhólum á Selfossi, samkvæmt meðfylgjandi gögnum Stígurinn var í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2010-2030.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarráð að framkvæmdaleyfi yrði samþykkt.
Svar

Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi vegna gerðar göngustígs meðfram Austurhólum á Selfossi, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.