Tillaga frá 28. fundi frístunda- og menningarnefndar frá 15. nóvember, liður 5. Reglur um heimild til launaðs leyfis vegna íþrótta- og menningarstarfs. Lögð fram til umræðu drög að reglum um heimild til launaðs leyfis vegna íþróttastarfs. Nefndin lagði til við bæjarráð að meðfylgjandi reglur yrðu samþykktar. Áður frestað á 131. fundi bæjarráðs.
Svar
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur um heimild til launaðs leyfis starfsmanna sem taka þátt í alþjóðlegum keppnum eða æfingaferðum þeim tengdum fyrir Íslands hönd eða félagsliðs.