Framkvæmdin er í umfangsflokki 2.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um samþykki skipulagsnefndar.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.