Erindi frá Vegagerðinni, dags. 30. ágúst, þar sem að óskað var eftir afnotaleyfi fyrir hjólreiðakeppninni KIA Gullhringurinn á vegsvæðum Vegagerðarinnar í Sveitarfélaginu Árborg dagana 10. september frá kl. 15:00 til 21:00 og 11. september frá kl. 09:00 til 12:30. Bæjarráð hafði áður veitt afnotaleyfi á 2. fundi en dagsetningu keppninnar var breytt.
Svar
Bæjarráð samþykkir að veita hjólreiðakeppninni KIA Gullhringurinn tilheyrandi afnot á vegsvæðum Vegagerðarinnar í Sveitarfélaginu Árborg dagana 10. september frá kl. 15:00 til 21:00 og 11. september frá kl. 09:00 til 12:30.