Selfossveitur bs, óska eftir framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar heitaveitustofnlagnar sem liggur frá hringtorginu við Víkurheiði að væntanlegri dælustöð hitaveitu við Eyði-Mörk 3. Nú í sumar er gert ráð fyrir að endurnýja alls 420 m. Þvermál nýju stofnlagnarinnar verður DN 300 og lítilsháttar hliðrun verður á lagnastæði stofnlagnarinnar. Sótt hefur verið um leyfi Vegagerðarinnar um lagningu stofnlagnarinnar á vegsvæði. Frágangur yfirborðs verður með svipuðu sniði og nú er. Framkvæmdatími er áætlaður síðsumars 2022.
Svar
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi, og leggur til við Bæjarráð Árborgar að umsókn verði samþykkt, og skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.