Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Engjaland 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 96
20. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Kjartan Sigurbjartsson hönnunarstjóri f.h. EL4 ehf. sækir um leyfi til að reisa 14 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir 2.204,9 m² og 6.701,3 m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að greinargerð brunahönnuðar verði skilað. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

800 Selfoss
Landnúmer: 231766 → skrá.is
Hnitnúmer: 10143045