Máli vísað til skipulags- og byggingarnefndar frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 5.10.2022:
"Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Guðrúnar Lúðvíksdóttur sækir um leyfi til að byggja stakstæða bílgeymslu og sólskála. Helstu stærðir eru; 79,4 m2 og 264,4 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Deiliskipulag hefur ekki verið gert. Vísað til skipulags- og byggingarnefndar og mannvirkja- og umhverfissviðs."
Svar
Skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjendur vegna áætlaðs byggingarmagns. Þá skal liggja fyrir samþykki forstöðumanna mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar og Selfossveitna.