Víðistaðaskóli, stefna
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3278
16. desember, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. Gerð grein fyrir samkomulagi um uppgjör vegna framkvæmda við skólann.
Svar

Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi samkomulag um uppgjör við ÁF hús ehf. vegna stækkunar Víðistaðaskóla og leggur til við bæjarstjórn: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gefa út skuldabréf að upphæð kr. 76.974.320 til sjö ára í samræmi við fyrirliggjandi skilmála í samkomulagi um uppgjör vegna Víðistaðaskóla, sem kynnt var í bæjarráði 16. desember 2010. Jafnframt er Guðmundi Rúnari Árnasyni, kt. 010358-4779, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita skuldabréf sbr. framangreint og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem því tengjast.“