Svör við könnun sýna mismunandi viðhorf íbúa. Þeir sem eru með mörg merkt svæði á bæjarlandi eru að vonum ánægari en þeir sem hafa útbúið stæði á eigin lóð og takmarkað þannig nýtingamöguleika hennar. Almennt hefur ekki verið farin sú leið að sérmerkja bílstæði á bæjarlandi og er það ákvörðun ráðsins að svo skuli einnig vera í Álfholtinu. Þar sem bílastæði eru teiknuð inn á samþykktar byggingarnefndarteikningar ber lóðarhöfum að láta útbúa bílastæði samkvæmt teikningum. Til þess að koma á móts við þarfir íbúa um fleiri stæði er það markmið SBH að fjölga stæðum um 4.
Sviðsstjóri vék af fundi við afgreiðslu erindisins.