Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1635
21. apríl, 2010
Annað
Fyrirspurn
12. liður úr fundargerð SBH frá 13.apríl sl. Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar flutningskerfi raforku til samræmis við áætlanir Landsnets um styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi og samkomulag Hafnarfjarðar og Landsnets þar um, sem samþykkt var af bæjarstjórn 11.11.2008. Breytingarnar eiga við raflínur og jarðstrengi frá Geithálsi og Sandskeiði að núverandi og fyrirhuguðum tengivirkjum í Hafnarfirði og áfram þaðan að álverinu í Straumsvík og til Suðurnesja. Bæjarstjórn samþykkti að auglýsa tillöguna dags. 18.10.2009. Haldinn var forstigskynningarfundur 07.09.2009. Áður lagt fram álit Skipulagsstofnunar á frummatsskýrslu dags. 17.09.2009 og endanleg matsskýrsla Eflu og Landsnets dags. 10.08.2009. Tekið fyrir að nýju bréf Skipulagsstofnunar dags. 18.11.2009 varðandi auglýsingu tillögunnar, en Skipulags- og byggingarráð fól skipulags- og byggingarsviði að bregðast við athugasemdum sem þar komu fram. Áður lagðar fram umsagnir Fornleifaverndar ríkisins og Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, ásamt lagfærðum skipulagsuppdrætti dags. 01.02.2010 og lagfærðri umhverfisskýrslu dags.16. október 2009. Áður lagðar fram umsagnir Umhverfisstofnunar dags. 03.03.2010, umsögn framkvæmdastjórnar vatnsverndarsvæða Höfuðborgarsvæðisins dags. 26.02.2010 og umsögn stjórnarmanna Hraunavina dags. 28.02.2010. Áður lögð fram samantekt sviðsstjóra á innkomnum athugasemdum.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði send í auglýsingu samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags-og byggingarráð bendir framkvæmdaraðila á að sækja þarf um undanþágu frá reglugerð nr. 533/2001. Jafnframt felur skipulags- og byggingarráð skipulags- og byggingarsviði að kynna tillöguna fyrir nágrannasveitarfélögum. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Suðvesturlínur verði send í auglýsingu samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn atkvæði fulltrúa VG sem vísar í fyrri bókanir og telur að fulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í skipulags- og byggingarráði hafi vikið frá ábyrgri náttúruvernd með þessari samþykkt. Fulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks benda á að framkvæmdin hefur farið í mat á umhverfisáhrifum og er nú samþykkt til auglýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi. Að loknu auglýsingarferli verður tekin endanleg afstaða til málsins. Í því sambandi er rétt að fram komi að taka þarf afstöðu um legu línunnar um vatnsverndarsvæði, en ákvörðun um undanþágu vegna legu um brunnsvæði og staðfesting skipulagsins liggur hjá umhverfisráðherra. Fulltrúi VG telur að það sé greinilegur vilji Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks að línur liggji yfir brunn- og vatnsverndarsvæði og leggur þá ábyrgð á umhverfisráðherra. Fulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks benda á að málið hefur fengið eðlilega og lögformlega málsmeðferð á öllum stigum og eru þess viss að umhverfisráðherra skorist ekki undan þeirri ábyrgð sem ráherranum er falið lögum samkvæmt.
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók þá til máls. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson kom að andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Jón Kr. Óskarsson tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Jón Kr. Óskarsson svaraði andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Gísli Ó. Valdimarsson svaraði andsvari öðru sinni. Eyjólfur Sæmundsson tók til máls. Haraldur Þór Ólason tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 10 atkvæðum. 1 bæjarfulltrúi greiddi atkæði gegn tillögunni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að svohljóðandi bókun: "Bæjarfulltrúi Vinstri grænna greiðir atkvæði gegn því að senda framangreinda tillögu í auglýsingu. Ástæðurnar eru þær að samkvæmt samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets, um styrkingu á raforkufluningskerfi Suðvesturlands, munu nýjar háspennulínur liggja yfir viðkvæmt vatnsverndarsvæði og merkt brunnsvæði. Í staðinn fyrir að verja eins mikilvæga og dýrmæta auðlind sem vatnið okkar er, með því að vinna að lausn sem ekki fer yfir brunnsvæði, þá hafa bæði kjörnir fulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks vísað þeirri ábyrgð frá sér og vikið frá ábyrgri náttúruvernd. Fulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðirsflokks ætla hins vegar að koma ábyrðinni yfir á umhverfisráðherra þar sem umhverfisráðherra geti veitt undanþágu. Fulltrúar beggja flokka virðast því vera smitaðir af því sem hefur verið í tísku í landsmálapólitík hrunaflokkana þriggja, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar, að vísa frá sér ábyrgð og benda á aðra, í þessu tilfelli umhverfisráðherra, í staðinn fyrir að gegna skyldum sínum og axla ábyrgð." Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign)   Gísli Ó. Valdimarsson kom að svohljóðandi bókun f.h. bæjarfulltrúa Samfylkingar: "Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vísa í bókanir fulltrúa Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði frá fundi ráðsins þann 13. apríl 2010. Allur undirbúningur þessa máls hefur verið ítarlegur og vandaður. Mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar hefur farið fram, matsferlinu lauk í september á sl. ári með áliti frá Skipulagsstofnun. Í matsferlinu var víðtæk og ítarleg umfjöllun um alla umhverfisþætti verkefnisins. Umhverfisskýrsla með tillögu að breytingu á aðalskipulagi liggur fyrir. Í henni er ennfrekar farið yfir umhverfismál í breytingartillögu aðalskipulags." Gísli Ó. Valdimarsson (sign) Eyjólfur Sæmundsson (sign) Jón Kr. Óskarsson (sign) Ingimar Ingimarsson (sign) Lúðvík Geirsson (sign) Guðfinna Guðmundsdóttir (sign) Guðmundur Rúnar Árnason (sign)