Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir í umboði bæjarstjórnar að beita forkaupsrétti gagnvart öllum fölum hlutum sem Hafnarfjarðarbær á rétt á samkvæmt samþykktum félagsins og lögum.
Með þessari samþykkt, sem full eining er um í bæjarráði Hafnarfjarðar, leggur ráðið áherslu á að tryggja ráðandi hlut sinn i Hitaveitu Suðurnesja og um leið hagsmuni bæjarbúa og annarra neytenda veitunnar.
Jafnframt fagnar bæjarráð yfirlýsingum bæjarstjóra Reykjanesbæjar um það að vinna að því að Hafnarfjarðarbær geti eignast þriðjungshlut innan félagsins og að Reykjanesbær beiti ekki ráðandi hlut sínum til að koma í veg fyrir það. Öll slík samvinna sveitarfélaga er af hinu góða.
Bæjarráð ítrekar að formleg samvinna á milli Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reyjavíkur hefur staðið yfir í áratugi til að veita Hafnfirðingum og fyrirtækjum í Hafnarfirði góða þjónustu.
Að lokum vill bæjarráð leggja áherslu á að með þessu er verið að tryggja stöðu Hafnarfjarðar og neytenda í Hafnarfirði og beinist því ákvörðun þessi ekki gegn Geysi Green Energy ehf.
Lögð fram drög að samkomulagi um kaup Orkuveitu Reykjavíkur á þeim hlut Hafnarfjarðarbæjar sem Hafnarfjarðarbær eignast við sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf. ásamt drögum að samningi vegna uppgjörs á greiðslum kaupverðs í tengslum við kaupin. Jafnframt lögð fram drög að viljayfirlýsingu milli seljanda og kaupanda.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð gögn og veitir bæjarlögmanni umboð til að undirrita samningana og viljayfirlýsingu f.h. Hafnarfjarðarbæjar. Jafnframt er bæjarlögmanni falið að tilkynna ríkinu um ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar að nýta forkaupsrétt sinn í fölum hlut í Hitaveitu Suðurnesja.
Jafnframt var lagt fram tilboð frá Geysir Green Energy ehf., dags. 30. júní ´07, í hlut Hafnarfjarðarbæjar en tilboðið rann út kl. 14:00 2. júlí ´07.