Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið sem afmarkast af Kaldárhrauni og Gjánum til norðurs, vesturs og austurs og að rótum Undirhlíða til suðurs og fylgir þar vatnsbólsgirðingunni. Einnig að vinna verklýsingu fyrir skipulagið, kynna hana skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og setja af stað fornleifaskráningu fyrir svæðið.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn samþykkir að unnin verðin tillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir Kaldárselssvæðið í samræmi við 30. gr. laga nr. 123/2010 skipulagslaga."