Lagt fram bréf framkvæmdastjóra og fjármálastjóra Strætó bs dags. 4. september 2007 varðandi fjárþörf fyrirtækisins og tillögur varðandi endurfjármögnun. Greiðslan er þríþætt:
Nóvember 2007 19.786.973
Janúar 2008 23.497.030
Mánaðarlega frá feb. 2008 í 20 mánuði 1.236.686
Hlutur Hafnarfjarðar samtals er því kr. 68.017.723
Svar
Bæjarráð vísar tillögum um endurfjármögnun til afgreiðslu í bæjarstjórn. Gert er ráð fyrir framlagi þessa árs í breytingartillögum við fjárhagsáætlun 2007 sbr. mál nr. 0708189.