Lögð fram tillaga úr skipulags- og byggingarráði frá 14. ágúst sl. um að leggja á dagsektir vegna þess að lokaúttekt hefur ekki farið fram á fasteigninni nr. 2 við Þrastarás.
Svar
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkir að sæki byggingarstjóri ekki um lokaúttekt á húsinu Þrastarás 2 fyrir 31. ágúst verði beitt ákvæðum 1. mgr. 57. greinar skipulags- og byggingarlaga um dagsektir.