Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025, Krýsuvík, hvað varðar staðsetningu tilraunaborhola, endurskoðaður uppdráttur dags. 22.09.2009. Tillagan var auglýst 21.12.2009 samkvæmt 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og var athugasemdatími til 09.02.2010. Engar athugasemdir bárust nema frá umsagnaraðilum: Umhverfisstofnun dags. 28.01.2010 og Stjórn Reykjanesfólkvangs dags. 08.02.2010.