Lækjargata 2, Dvergslóðin, deiliskipulag
Lækjargata 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3253
4. febrúar, 2010
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram afgreiðsla skipulags- og byggingarráðs frá 2. febrúar sl. á samþykkt bæjarstjórnar frá 1.6. 2008. Einnig lögð fram umsögn skipulags- og byggingarsviðs varðandi skipulag reitsins. Starfandi bæjarlögmaður gerði jafnframt grein fyrir stöðu málsins hvað eignarhald varðar.
Svar

Bæjarráð samþykkir vegna fyrirhugaðs niðurrifs á fasteigninni nr. 2 við Lækjargötu í Hafnarfirði á grundvelli gildandi deiliskipulags og samþykktar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 1. júní 2008 að fela bæjarstjóra og bæjarlögmanni að leita eftir samningum við eigenda húsnæðisins við Lækjargötu 2, fastanúmer 207-7601, 207-7602, 207-7608 í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.