Hitaveita Suðurnesja, eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1618
1. september, 2009
Annað
‹ 5
6
Fyrirspurn
1. liður úr fundargerð BÆJH FRÁ 31. ágúst sl. Lagt fram samkomulag dags. 31.ágúst 2009 milli Orkuveitu Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbæjar um uppgjör á samkomulagi frá 2. júlí 2007 milli sömu aðila. Gerður Guðjónsdóttir fjármálastjóri mætti til fundarins.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi samkomulagi til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Svar

Lúðvík Geirsson tók til máls, þá Haraldur Þór Ólason, Gunnar Svavarsson kom að andsvari við ræðu Haraldar Þórs Ólasonar. Þá tók Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir til máls, Gunnar Svavarsson kom að andsvari við ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Gunnar Svavarsson kom að andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari öðru sinni.   Gert var stutt fundarhlé kl. 16:55, fundi fram haldið kl. 17:07.   Guðfinna Guðmundsdóttir tók til máls, þá Gunnar Svavarsson og Rósa Guðbjartsdóttir, Lúðvík Geirsson kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Gunnar Svavarsson kom einnig að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari,  Gunnar Svavarsson kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Þá tóku til máls Almar Grímsson og Gunnar Svavarsson.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með 8 atkvæðum gegn 3.   Guðfinna Guðmundsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.   Gunnar Svavarsson gerði einnig grein fyrir atkvæði sínu.   Rósa Guðbjartsdóttir óskað eftir að koma að svohljóðandi bókun: "Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur 31.8.2009 er að því leyti ánægjulegt að Orkuveitan hefur þar með í reynd viðurkennt samning þann sem var gerður í júlí 2007 um sölurétt Hafnarfjarðarbæjar á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja á genginu 7,0. Bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins finnst það þó skjóta skökku við að meirihluti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hefur ákveðið að breyta ákvörðun bæjarstjórnar frá 18. desember 2007 og losa Orkuveituna undan hluta samningsins sem nemur eignarhlut í HS veitum. Þannig verður Hafnarfjörður af sölutekjum sem nema 1,4 milljarði króna auk vaxta af þeirri upphæð. Þessi breyting á fyrri afstöðu verður ekki skýrð með öðru en sundurlyndi í Samfylkingunni sem verður Hafnarfjarðarbæ dýrkeypt. Einnig verður að halda því til haga að Samfylkinginn felldi fyrir réttum 2 árum tillögu bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að selja þá þegar allan eignarhlutinn í Hitaveitu Suðurnesja og greiða niður tilteknar skuldir í erlendri mynt að upphæð um 7 milljarða króna skv. gengisvísitölu 2. september 2007. Nú 2 árum síðar hefur gengisvísitalan tvöfaldast  og langtímaskuldirnar jukust um 14 milljarða króna milli áranna 2007 og 2008. Hefði Samfylkingin farið að tillögu Sjálfstæðisflokksins og selt um haustið 2007 og greitt niður erlendar skuldir, væri skuldastaða bæjarins 14 milljörðum króna lægri en hún er í dag. Þetta sýnir í hnotskurn hve illa Samfylkingin hefur stýrt sveitarfélaginu Hafnarfirði og hve ákvarðanafælni þeirra hefur reynst bæjarbúum dýrkeypt." Rósa Guðbjartsdóttir (sign.) Almar Grímsson (sign.)   Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir óskaði eftir að koma að svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúi Vinstri grænna greiðir atkvæði gegn samningnum og gerir grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi:   Það ber að fagna því að Orkuveita Reykjavíkur gangist við kaupum sínum á hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja. Einnig ber að fagna því að Hafnarfjarðarbær skuli taka aftur til sín fyrri hlut sinn í HS Veitum hf.   Það er hins vegar sorglegt að Orkuveita Reykjavíkur skuli tengja uppgjörið á kaupum sínum á hlut Hafnarfjarðar við sölu á eign sinni í HS Orku hf til einkafyrirtækis í stað þess að veita meira svigrúm til að reyna að tryggja opinbert eignarhald á HS Orku hf. Sífellt eru að koma fram nýjar og nýjar afleiðingar af einkavæðingaræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks síðustu ára á opinberum fyrirtækjum, og er þetta ein þeirra.    Upphafleg sala á hlut Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur var tilraun til að koma Hitaveitunni í opinbera eigu að eins miklu leyti og unnt var. Með í farteski þessa samnings, er hins vegar, jafnframt samþykki fyrir sölu á þeim hlut Hafnarfjarðar í HS Orku hf. sem eftir er til Magma Energy Sweeden.   Með því að greiða samningnum atkvæði er því verið að blessa þann gjörning OR að selja HS Orku hf. til einkaaðila og um leið að samþykkja sölu Hafnarfjarðar á því sem eftir er af eign bæjarins í HS Orku hf. til sömu aðila. Þ.a.l. getur bæjarfulltrúi Vinstri grænna ekki annað en greitt atkvæði gegn samningnum. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir( sign.)   Lúðvík Geirsson óskaði eftir að koma að svohljóðandi bókun: Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar taka heilshugar undir bókun fulltrúa flokksins í bæjarráði  frá því í gær og lýsa yfir ánægju sinni með að fyrir liggur ásættanlegt og sanngjarnt samkomulag um uppgjör við Orkuveitu Reykjavíkur vegna fyrri samnings aðila frá því á árinu 2007 um fyrrum eignarhluti Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja.  Deildar meiningar hafa verið milli aðila um stöðu þess samnings eftir inngrip Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu Héraðsdóms í innheimtumáli sem  Hafnarfjarðarbær höfðaði.  Orkuveitan áfrýjaði þeim dómi til Hæstaréttar en bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa á öllum stigum þessa máls boðið Orkuveitunni uppá viðræður um sátt og uppgjör í þessu deilumáli. Nú liggur loks slíkt samkomulag fyrir sem allir aðilar geta vel við unað.  Tryggðir eru sanngjarnir vextir á upphaflegt kaupverð og uppgjör skal fara fram innan tilskilins tíma, að öðrum kosti verður réttarstaða málsaðila óbreytt  samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Heildargreiðslur nema  um 7,1 milljarði króna og að auki heldur Hafnarfjarðarbær eftir 14.649% eignarhlut í HS-veitum sem er sama eignarhlutfall og bæjarfélagið fékk með innlagningu Rafveitu Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja fyrir um áratug.  Þannig verður eftir uppskipti HS um sl.  áramót tryggð áfram aðkoma bæjarins að stjórn veitunnar og starfsstöð í bæjarfélaginu auk eignarhalds á þeim rafveitulögnum sem liggja í gatnakerfi bæjarins. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa allt frá því að tekin var sameiginleg ákvörðun í bæjarráði  í byrjun júlí 2007 að taka tilboði OR allt í kaup á eignarhlut bæjarfélagins í Hitaveitu Suðurnesja með 6 mánaða fresti til endanlegrar staðfestingar bæjarstjórnar, lagt ríka áherslu á tryggja stöðu og hagsmuni bæjarfélagsins til bæði skemmri og lengri tíma og einnig að skapa breiða samstöðu bæjarfulltrúa allra flokka um afgreiðslu þessa mikilvæga máls.  Sú hefur og verið raunin fram til þessa.  Endanleg ákvörðun sem tekin var um sölu í bæjarstjórn í desember 2007 var samhljóða enda lágu þá fyrir allar lykilforsendur sem þurftu að vera til staðar að mati bæjarfulltrúa Samfylkingar.    Þá var nýbúið að samþykkja á Alþingi breytingar á raforkulögum  um skýra skiptingu á milli auðlinda, orkuvera og veitukerfis.  Tryggt var með þeim lögum að auðlindir skyldu vera i eigu opinberra aðila og sama á við um veitukerfin.  Þessi nýju lög voru forsendur þess að endanleg ákvörðun um sölu var tekin auk þess sem Hafnarfjaðrarbær var í lok nóvember búinn að tryggja samstöðu með næstu nágrannasveitarfélögum á jarðhitasvæðum Krýsuvíkur um samstarf í skipulags og auðlindamálum með stofnun Suðurlinda ehf.   Með þessum hætti voru allir hagsmunir bæjarfélagsins tryggðir til komandi framtíðar á jarðhitasvæðum í Krýsuvík. Tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um beina sölu haustið 2007, áður en þessi atriði voru afgreidd og án þes s að fyrir lægi neitt formlegt verðmat á eignarhlutnum var ekki grundvölluð á þeim forsendum sem nauðsynlegt var að lægju skýrar fyrir.  Bæjarfulltrúar Samfylkingar hafa í góðu samstarfi við alla bæjarstjórn haldið af festu og ábyrð á þessu máli og leitast við með öllum hætti að tryggja og treysta hagsmuni  bæjarfélagsins og bæjarbúa í hvívetna.  Það samkomulag sem nú liggur fyrir við Orkuveitu Reykjavíkur um sátt og uppgjör milli aðila vegna er ásættanleg niðurstaða.  Lagaleg og málefnaleg staða bæjarfélagsins hefur verið sterk alla tíð í þessu máli sem sýnir með skýrum hætti að vel hefur verið haldið á allri stjórnsýslu og hagsmunum bæjarfélagsins.   Lúðvík Geirsson (sign.)                   Guðmundur R. Árnason (sign.) Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign.)  Guðfinna Guðmundsdóttir (sign.) Gísli Ó. Valdimarsson (sign.)            Ellý Erlingsdóttir (sign.) Gunnar Svavarsson (sign.)