Tekið fyrir að nýju erindi frá Pétri Guðmundssyni stjórnarformanns Eyktar ehf dags. 18.05.11, þar sem óskað er eftir að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina. Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu ásamt uppdrætti.
Svar
Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í framlagða tillögu þar sem hún samræmist ekki hugmyndum um langtímauppbyggingu svæðisins sem unnið er að í tillögu að rammaskipulagi svæðisins.