Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga Landslags ehf að rammaskipulagi fyrir uppland Hafnarfjarðar dags. 14.02.2008. Áður lögð fram tillaga að forsögn og minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs frá fundi með hagsmunahópum 11. og 20. nóvember 2008. Drög að rammaskipulagi voru kynnt á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 24. mars s.l. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu 29.06.2009 til kynningar í Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21, Framkvæmdaráði, Fjölskylduráði og Bæjarstjórn. Þráinn Hauksson Landslag ehf mætir á fundinn og kynnir.