Húsfélagið Fornubúðum 12 óskar með bréfi dagsettu 08.05.2009 eftir framlengingu á lóðarleigusamningi til 25 ára, sem rennur út 01.11.2009.
Svar
Þar sem skipulag svæðisins í heild sinni er í endurskoðun telur Skipulags- og byggingarráð eðlilegt að skoða alla lóðarleigusamninga á svæðinu á sama tíma og samþykkir fyrir sitt leyti að samningurinn verði framlengdur til 1. janúar 2015.