Fyrirspurn
12.liður úr fundargerð BÆJH frá 15.jan. sl.
Tekið fyrir að nýju erindi Berglindar Guðmundsdóttur um lóðarstækkun. Bæjarráð samþykkti erindið fyrir sitt leyti á fundi 23. apríl 2008 og fól skipulags- og byggingarsviði að grenndarkynna það. Grenndarkynning hefur verið afgreidd.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Berglindi Guðmundsdóttur viðbót við lóðina Arnarhraun 27 í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa. Verð ræðst af leyfðu byggingarmagni á lóðarstækkuninn."