Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 18.09.2009 að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af klettum norðan húsa norðan Hellubrautar/Hamarsbrautar, Suðurgötu, Mýrargötu og Strandgötu. Áður lögð fram fornleifaskráning Byggðasafns Hafnafjarðar fyrir svæðið dags. 2009, umsögn Húsafriðunarnefndar varðandi Hellubraut 7 dags. 05.05.2009, minnispunktar og svör við athugasemdum frá forstigskynningarfundi 25.05.2009, minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs varðandi hverfisvernd, ný greinargerð og uppdráttur dags. 30.09.2009, tillaga Teiknistofunnar ehf að fyrirkomulagi á lóðinni Hellubraut 7, gögn dags. 10. janúar 2009 og gögn frá skipulags- og byggingarsviði dags. 08.10.2009. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 30.03.2010 að auglýsa deiliskipulagstillöguna og gerði um það tillögu til bæjarstjórnar, sem vísaði málinu aftur til skipulags- og byggingarráðs á fundi 07.04.2010. Frestað á síðasta fundi. Formaður greinir frá viðræðum við eigendur Hellisgötu 5, 7 og 9. Lagður fram skipulagsuppdráttur dags. 05.05.2010 þar sem lóðamörk Hellubrautar 7 og 9 hafa verið endurskoðuð eftir viðræður við eigendur lóðanna. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 11.05.2010 að auglýsa deiliskipulagstillöguna og gerði um það tillögu til bæjarstjórnar, sem vísaði málinu aftur til skipulags- og byggingarráðs á fundi 19.05.2010. Lagður fram breyttur skipulagsuppdráttur dags. 20.05.2010