Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju bréf Húseigendafélagsins dags. 04.11.08 varðandi óleyfisframkvæmdir Jóns Karls Grétarssonar á 1. hæð hússins. Ekki hefur verið brugðist við ítrekuðum athugasemdum skipulags- og byggingarfulltrúa, sem ákvað á fundi 11.12.2008 að yrði ekki brugðist við athugasemdum innan eins mánaðar eða breytingarnar fjarlægðar myndi hann leggja til við skipulags- og byggingarráð að beitt verði dagsektum skv. VI. kafla skipulags- og byggingarlaga. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði erindinu 01.07.2009til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu:
"Skipulags- og byggingarráð ítrekar að eigendur sæki um leyfi fyrir umræddum framkvæmdum, sem fjallað verður um samkvæmt skipulags- og byggingarlögum. Berist ekki slík umsókn innan fjögurra vikna eða breytingarnar verði fjarlægðar að öðrum kosti, mun skipulags- og byggingarráð leggja til við bæjarstjórn að beitt verði dagsektum skv. VI. kafla skipulags- og byggingarlaga".