Lagt fram erindi Titan Global ehf dags. 28. október 2009 þar sem óskað er eftir að undirrituð verði viljayfirlýsing milli félagsins og Hafnarfjarðarbæjar varðandi lóð í Kapelluhrauni.
Svar
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við fyrirtækið í samræmi við umræður á fundinum og á sama grunni og önnur sambærileg mál.