Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að 2. áfanga iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni skv. uppdrætti skipulags- og byggingarsviðs dags. 08.02.2009. Skipulagið var auglýst 02.03.2009 skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga og lauk athugasemdatíma 17.04.2009. Lagðar fram umsagnir Landsvirkjunar dags. 08.04.2009 og Rio Tinto - Alcan dags. 17.04.2009. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.