Skipulags- og byggingarráð þakkar Stefáni Veturliðasyni, Sigurði Einarssyni, Önnu Margréti Tómasdóttur og Þráni Haukssyni kynninguna. Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða samninga. Samþykkt með 3 atkvæðum, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna sitja hjá. Fulltrúi VG telur þessa vinnu ekki tímabæra og allt of dýra. Fulltrúi VG vill einblína á legu Ásvallabrautar sem tengir Velli og Ásland saman.