Bæjarráð samþykkir að sérstakur starfshópur sem ráðið skipaði þann 9. október til að hafa samráð vegna stöðu efnahagsmála vegna sérstakra aðstæðna sem þá voru uppi í samfélaginu hafi formlega lokið störfum. Þau mál sem snúa sérstaklega að umfjöllun og kynningu á framkvæmd og endurskoðun fjárhagsáætlunar og einstökum verkefnum í atvinnumálum verða sem hingað til tekin til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.