Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 04.03.2009 lóðarhafa skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því myndi verða gerð tillaga um aðgerðir í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu um dagssektir í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. "