Reykjavíkurvegur 50, Krónan, umgengni á lóð
Reykjavíkurvegur 50
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 231
11. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju bréf frá húsfélaginu Reykjavíkurvegi 50, þar sem borin er fram kvörtun vegna gáma verslunarinnar Krónunnar, sem eru mjög til lýti og óþæginda fyrir íbúa hússins. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 10.06.2009 eigendum gámanna skylt að ganga þannig frá þeim að ekki sé til lýti og óþæginda fyrir nágranna. Yrði ekki úr þessu bætt innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 37/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði málinu 01.07.2009 til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð gerði 07.07.2009 eigendum gámanna skylt að ganga þannig frá þeim að ekki sé til lýti og óþæginda fyrir nágranna. Yrði ekki úr þessu bætt innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 37/1997.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áður boðaðar dagsektir vegna umgengni á lóðinni verði kr. 20.000/dag, og verði innheimtar frá og með 1. september 2009, hafi lagfæringar ekki verið gerðar fyrir þann tíma."